Hér koma pislar um síðustu tvo leiki Einherja sem voru á móti Magna annarsvegar og 2.flokki Þórs hinsvegar.
Þá er komið að æfingarhelgi hjá okkur í Einherja og verðum við á Akureyri í þetta skipti. Fyrirhugað er að taka tvo æfingarleiki við Magna á Grenivík og 2. flokk Þórs.
Pistill um leik Magna og Einherja
Leikurinn við Magna var settur kl 16:00 1. maí.
Byrjunarliðið var eftirfarandi:
Elías
Daníel Ívar Davíð Steini
Helgi
Gulli Donni Símon Daði
Matti
Bekkur: Bjarki, Arnar I, Arnar G, Adam, Örn.
Leikurinn byrjaði mjög vel hjá okkur og voru menn staðráðnir í að sýna 2 deildar liðinu enga miskun. Við vorum vel skipulagðir í vörninni og gáfum mjög fá færi á okkur í fyrri hálfleik. Strax á upphafs mínútum leiksins fengum við 2 mjög góð færi en markvörður Magna sá við okkur í bæði skiptin. Það var mikil stöðu- og miðjubarátta sem einkendi fyrri hálfleikinn hjá báðum liðum. Það má samt segja að við vorum óheppnir að setja ekki botann a.m.k. einu sinni í mark Magnamanna í fyrri hálfleik. Magnamenn áttu nokkur hálffæri og segja má að það sé það næsta sem þeir komust að okkar marki í fyrri hálfleik.
Hálfleikur 0-0
Í seinni hálfleik komu Magnamenn mun ákveðnari til leiks og skoruðu fyrsta mark leiksins. Það var mjög klaufalegt af okkar hálfu. Elías sendi á Steina sem sendi svo aftur á Elías sem ætlaði svo að senda aftur á Steina, en þá komst magnamaður í milli og vippaði hann boltanum yfir Elías 1-0. Úff náðu þessu allirJ sem sagt ÞórshafnarklúðurJ En við gáfumst ekki upp og náðum að skora jöfnunarmarkið aðeins nokkrum mínútum síðar. Þar var á ferðinni Donni sem slapp einn innfyrir vörn Magna eftir stungusendingu frá Helga. Donni kláraði færið vel og staðan orðin 1-1.
En eftir þetta hrundi leikur okkar og það opnuðust flóðgáttir í vörninni. Það var greinilegt að menn eru ekki komnir í almennilegt form fyrir 90 mínútur. Magnamenn skoruðu annað markið sitt aðeins tveimur sóknum eftir að við náðum að jafna metin og stuttu síðar kom þriðja markið. Gerðar voru skiptingar hjá okkur og einhverjar tilfærslur voru á mönnum en það gerði ekki mikið fyrir okkar leik. Magnamenn héldu áfram að sækja og skoruðu 4 mörk í viðbót og leikurinn endaði 7-1. Í heildina var leikurinn allt í lagi hjá okkur og helst til var þetta of stór sigur að hjá Magna að mínu mati.
Heyrðist eftir leik:
Þegar menn voru komnir í búningsklefann eftir leik var alger þögn. Þá heyrðist allt í einu í hinum risa smáa Bjarka “koma svo strákar við vinnum bara leikinn á morgun” og svo klappaði hann þrisvar. Það tók engin undir með honum og allir gláftu á hann þanga til hann var orðin svo eld rauður að hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Þá sprakk hópurinn úr hlatri.
Símon kenndi Þórshafnarstrákunum um fyrsta markið og sagði “helvítis húsdýr”
Pistill um leik 2.flokks Þórs og Einherja
Leikurinn við Þór var settur kl 15:15 2. maí.
Byrjunarliðið var eftirfarandi:
Elías
Daníel Ívar Helgi Steini
Simon
Bjarki Daði Davíð Donni
Matti
Bekkur: Gulli, Arnar I, Arnar G, Adam, Örn.
Fyrir þennan leik voru menn frekar þreyttir eftir leikinn sem var deginum áður. Við mættum nú samt með fullskipað lið og í vel sveittum búningum. Ekki náðist að þvo búningana á milli leikja og voru þeir lokaðir í töskunni yfir nóttina, og er hún var svo opnuð fyrir leik gaus upp frekar súr fíla og án þess að vara að ýkja nokkuð þá gátum við undið sokkanaJ Ef við hefðum byrjað þennan leik eins og við byrjuðun leikinn á móti Magna þá hefðum við án efa náð hagstæðari úrslitum. En svo var ekki og Þórsarar gengu á lagið og skoruðu 2 mörk á fyrstu 15-20 mínútunum. Eftir þetta náðum við aðeins að átta okkur á hlutunum og náðum að setja á þá mark. Donni slapp þá einn innfyrir vörn Þóssara og fór framhjá markverðimum og skaut bilmings skoti nánast frá endalínunni upp í þaknetið 2-1. Fínt mark hjá Donna. Þóssarar létu nú þetta ekki á sig fá og þjörmuðu enn frekar að okkur. Að mig minnir þá áttur Þóssarar a.m.k. eitt ef ekki tvö sláarskot í fyrri hálfleik. Þegar var svo flautað til hálfleiks voru Þóssarar komnir með þriggja marka forskot 4-1.
Í hálfleik voru menn frekar fúlir og vildu sína því fólki sem var komið í Bogann hvers við erum megnugir. Davíð tók þrusu ræðu um hvað hann vildi að við yrðum að laga.
Það var allt annað að sjá til okkar í seinni hálfleik. Við náðum upp talandanum og það skiptir gríðalaga miklu máli. Baráttan var miklu meiri í liðinu og við vildum virkilega minnka muninn enn frekar. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af hálfleiknum skoruðum við og var það Donni enn og aftur sem kláraði færið sitt vel eftir að hafa dottið einn í gegn. 4-2. Þessi staða hélst svona í um 25 mínútur. Við vorum að verjast ágætlega og Elías var að standa sig vel í markinu þrátt fyrir öll þessi mörk. Steini átti svo gott færi en því miður á vitlaust mark er hann skallaði boltan aftur á Elías sem þurfti að taka á honum stóra sínum til að koma í veg fyrir sjálfsmarkJ En þeir náðu logs að setja 5 markið á okkur og var það af ódýrari gerðinni. Laflaus skalli sem vörninn átti að vera búin að koma í burtu 5-2. 6 markið hjá þeim kom svo rétt fyrir leikslok og þar með endaði leikurinn. Lokatölur 6-2.
Já þannig fór um sjóferð þá. Tvö slæm töp á móti mjög sterkum liðum en það gengur bara betur næst. Það er stemmt á að hafa æfingarhelgi helgina 16-17 maí fyrir austan. Lokaundirbúningnum líkur þá og styttist þá í alvöruna. 3 deildin byrjar 21 maí og vísa-bikarinn 24 maí.
Einherjakveðjur
Steini
Pistill frá Steina
Mikill metnaður í þessum skrifum hjá Steina, hér kemur slumman.
Hérna kemur smá pistill um síðustu tvo leiki hjá okkur.
Það hefur verið stíft prógram hjá okkur einherjamönnum síðustu fimm daga. Þetta byrjaði með leik á Fellavelli föstudaginn 3.apríl. Það var þriðji leikurinn við Hött og var það fínn leikur að okkar hálfu. Byrjunarliðið var svona:
Ómar
Arnar Smári Davíð Steini
Helgi
Matti Simmi Gísli Daði
Elmar
Bekkur: Raggi, Bjarki, Adam, Gulli, Ívar, Arnar Ingólfs, Örn.
Við vorum betri aðilinn í leiknum og sköpuðum við okkur nokkur færi í byrjun. Við lentum undir 1-0 eftir mikið klafs í teignum og var það gegn gangi leiksins. Þegar það var flautað til hálfleiks þá var þruman á vinstri kantinun hann Daði búin að setja boltan tvisvar í markið og staðan orðin 1-2. Mörkin voru keim lík. Það komu fyrirgjafir frá hægri og Daði var vel staðsettur í bæði skiptin á fjærstögninni og setti boltan örugglega í netið. Það var heldur meira jafnræði með liðunum í seinni hálfleik. En um miðjan hálfleikinn þá fengum við á okkur klaufalegt mark eftir mistök í vörninni okkar og staðan orðin 2-2. Við lögðum hins vegar ekki árar í bát og skoruðum sigurmarkið undir kok leiksins. Hver annar en Daði skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu og fullkomnaði hann þar með þrennuna 2-3. Við hefðum hæglega getað unnið stærra því að mínu mati vorum við mun betri aðilinn í heildina. Við höfum því náð að hefna okkur rækilega fyrir fyrsta leikinn á móti Hetti sem fór 8-1 fyrir þáϑ
Aftur voru einherjamenn mættir á Fellavöll. Mánudaginn 6. apríl tókum við á móti Huginn frá Seyðisfirði. Þess má geta að þeir eru með okkur í riðli í þriðju deildinni í sumar. Byrjunarliðið var svona:
Elías
Steini Davíð Smári Daði
Helgi
Gulli Simmi Gísli Donni
Matti
Bekkur: Bjarki, Adam, Ómar, Örn,Gummi.
Þessi leikur byrjaði hreint út sagt fáránlega fyrir okkur. Þeir náðu að skora mark eftir 6 sek þó svo að við byrjuðum með boltan á miðju. Þannig var mál með vexti að tekin var miðja á Símon, hann sendi boltann til vinstri á Helga sem lét boltann fara á Steina en áður en Steini náði til boltans komst huginsmaður í milli og skoraði með hnitmiðuðu skoti yfir Elías 1-0. Eftir það var vörnin frekar taugaveikluð og var hún að missa háa bolta yfir sig trekk í trekk. Um miðjan hálfleikinn var komin meiri stöðuleiki í liðið okkar og sóttim við þó nokkuð. Þá gerðist alveg stór merkilegur atburður.
Símon hinn mikli tókst loksins að skora og ekki líka neitt smá mark. Það kom sending frá kantinum frá Donna meðfram jörðinni út fyrir miðjan vítateiginn þar sem Símon kom á fleygi ferð og neldi bolganum með snúningi upp í vínkilinn, þetta var dýra týpan. Það var dásamleg stund þegar Simmi loksins fattaði að hann hafi skorað sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk og við ætluðum að fagna með honum, en hann var eins og hauslaus hæna og vissi ekki þennan heim né annan því hann vissi ekkert hvað hann átti að gera né fara 1-1.
Eftir það sóttu bæði liðin á víxl og vorum við oftar en ekki dæmdir ranglega rangstæðir. Það var tekið mark af okkur sem Matti skoraði vegna rangstöðu sem átti ekki að vera rangstæða. Það voru allir hneikslaðir á þessum dómi línuvarðarins líka huginsmenn. En í hálfleik var staðan 3-1 fyrir Huginn.
Í hálfleik tók Davíð okkur á beinið og peppaði okkur upp fyrir komandi hálfleik.
Við byrjuðum af miklum krafti í seinni hálfleik og vorum miklu mun betri en þeir. Við náðum að loka vörninni og sóknarþungi okkar jókst. Matti skoraði svo annað markið okkar eftir að hafa fengið boltann inn í teig og kláraði hann færið vel framhjá markmanninum 3-2. Matti svona áttu að klára færinϑ Við náðum svo að jafna leikinn þegar Steini af öllum mönnum hljóp fram (þvert gegn vilja þjálfarans) og fékk boltan utarlega í vítarteignum lagði hann fyrir sig og hamraði boltann upp í þaknetið 3-3. Fínt mark hjá Steina og var því fagnað vel og innilega.
Veldipunktur leiksins var svo nokkrum mínútun eftir markið hans Steina. Donni og huginsmaður lentu í samstuði úti á hægri kanti og ákvað dómari leiksins að reka þá báða útaf með rautt spjald. Þetta var fáránleg ákvörðun hjá þessum frekar slappa dómara. Við misstum klárlega betri mann af velli þarna heldur en Huginsliðið. Það var um 15 mínútur eftir að leiknum þegar þeir fuku útaf. Huginn skoraði svo tvö mörk á síðustu 10 mínútum leiksins en þá vorum við farnir að leita að fjórða markinu okkar 5-3. Smá meiri skinsemi og leikurinn hefði getað lent okkar megin.
Það er fullt af góðum hlutum í gangi hjá okkur í þessum tveimur leikjum. Til dæmis að koma til eftir að hafa lent marki eða mörkum undir. Hins vegar var slæmt að missa leikinn á móti Huginn niður í tap eftir góða og mikla baráttu.
Einherjakveðjur
Steini
Program fyrir páska.
Laugardagur 4.apríl 11.30 Höttur B - Einherji á Egilsstöðum
Sunnudagur 5.apríl Æfing á Vopnafirði
Mánudagur 6.apríl æfing á Vopnafirði
Þriðjudagur 7.apríl 20.00 Huginn - Einherji á Egilsstöðum
Miðvikudagur 8. Apríl æfing á Vopnafirði
Eftir þetta mun Davíð halda aftur í borg óttans svo það verður í okkar höndum að halda úti æfingum á vopnafirði.
Ætlast er til þess að menn hlaupi úti minnst 3-4 sinnum í viku og þá 6 km í hvert skipti nema 1 sinni í viku hlaupa 4 km og þá a meira tempó heldur enn 6 km hlaupið, þið hafið allir fengið E-mail um þetta enn fannst fínt að minna mannskapinn á þetta. Stutt í mót svo það er mikilvægt að mannskapurinn verði kominn í topp stand þegar loksins mótið hefst fyrir alvöru.
Kveðja. Símon Svavarsson
Leikskýrsla eftir hann Steina
Sælir og takk fyrir síðsat
Það er frekar lítil umræða hérna á síðunni hjá okkur þannig ég kem með smá pistil varðandi síðustu helgi og endilega að láta i sér heyra.
Helgina 20 -22 mars síðasliðin var haldin æfingahelgi hjá Einherja með nýja þjálfaranum okkar. Sá fíni náungi heitir Davíð Ólafsson og bíð ég hann hér með velkomin til starfa hjá Einherja og hvað mig varðar þá fannst mér hann hress og skemtilegur og mjög gott að spila við hliðina á honum í vörninni:)
Á föstudaginn var fyrsta æfingin og ákveðið var að hafa hana í íþróttahúsinu. Byrjað var á bíb testi og stóðu þið ykkur bara ágætlega strákar (held að Símon hafi náð meira en 10 sem er bara fínt fyrir bumbulausan mann). Hins vegar mættu Þorsteinn og Elías á hárréttum tíma frá Þórshöfn á æfingu því bíb testið var langt komið þegar þeir mættu og sluppu þeir við það. Spilað var 4 liða mót eftir testið og æfingunni slúttað kl 22:00.
Laugardagsæfingin var kl 12:00 og var hún haldin á sparkvellinum. Þar var spilað 4 liða mót í um 2 klukkutíma ( ég held að Raggi hafi fengið 1087 færi á þessum 2 klukkutímun en ekki náð að skora) en æfingunni slúttað um kl 14:00.
Á sunnudeginum var ákveðið að fara til Egilsstaða og spila þar æfingarleik við Hött B. Mikil stemming var í hópnum og ætluðu allir að leggja sig 100% fram. Byrjunarliðið var svona:
Elías
Daníel Ívar Davíð Þorsteinn
Helgi
Gulli Símon Gísli Daði
Donni
Bekkur: Örn, Arnar, Bjarki, Ómar, Smári, Adam, Raggi, Matti
Leikurinn byrjaði vel og vorum við með mikil og góð tök á leiknum í fyrri hálfleik. Fyrsta markið skoraði Daði með stuttu skoti frá miðjum markmannsteig 0-1. Aðeins 2 mínútum síðan stal Donni boltanum af varnarmönnum Hattar og slapp einn innfyrir en það var brotið á honum og umsvifalaust vítarspyrna dæmd. Gísli tók spyrnuna en markmaðurinn varði en Donni fylgdi á eftir og skoraði 0-2. Vörnig og miðjan hjá okkur var að spila virkilega vel og gáfum við engin færi á okkur í fyrri hálfleik nema í eitt skipti þegar þeir komust innfyrir og fengu vítarspyrnu eftir að Elías braut af sér. Elías fór í rétt horn en það dugði ekki til og þeir skoruðu 1-2. Stuttu seinna náðum við góðri sókn og hann Gísli skoraði með góðu skoti úr markteignum og staðan var orðin 1-3.
Í hálfleik var farið yfir stöðuna og einhverjar skiptingar voru. Meðal annars það sem heyrðist í hálfleik var "ég veit ekkert hvað ég á að að gera í þessari stöðu" sagði Helgi eftir að hann var færður framar á völlinn, úr miðverði í holuna á milli varnar og miðju.
Í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn meira og litu nokkur færi dagsins ljós. Atvik leiksins var hins vegar þegar við áttum hornspyrnu um miðjan seinni hálfleik. Ég man ekki hver tók hornið en það kom góð fyrirgjöf og Símon Svavarsson af öllum mönnum á vellinum náði að skalla boltann á markið en hönd guðs kom í veg fyrir að þessi lágvaxni miðjumaður sem nær jafn langt niður og við hin skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki. Þar var tekið mark af okkur og engin vítarspyrna dæmd, fúlt.
4 mörk áttu eftir að líta dagsins ljós í seinni hálfleik. Matti skoraði 4 markið okkar eftir að hann kom inná sem varamaður. Sorry Matti ég man ekki alveg hvernig það mark var:)1-4. Þá var komið að Gísla að setja boltan í netið með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu rétt fyrir utan vítarteig 1-5. Þessi tvö mörk komu um miðbik hálfleiksins.
Þegar um 15 mínútur voru eftir skoruðu Hattarmenn fáránlegt mark. Þeir náðu laflausu skoti frá vítateigslínunni sem var eins og vippa yfir Ómar 2-5. Síðasta orðið átti svo Gísli þegar hann fullkomnaði þrennuna með fallegasta marki leiksins sem var beint úr aukaspyrnu á nánast miðjum vallarhelmingi hattarmanna 2-6.
Þarna náðum við að hefna okkar fyrir 8-1 tapið í fyrsta leik okkar sem var einmitt á móti Hetti fyrir 3 vikum síðan.
Að mínu mati voru flestir að spila vel. Byrjunarliðið var sterkt og varamennirnir komu fullir af sjálfstrausti inná. Mér fannst Gísli vera besti maður vallarins, gríðarlegur styrkur að fá þig til Einherja Gísli.
Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinum og að þetta sé nokkurn vegin í réttri röð hjá mér
Einherjakveðjur Steini
Daði: tók mér það leyfi að leiðrétta 3 villur sem ég tók eftir:D
Slúðurpakki dagsins: Einherji komnir með þjálfara?
Tekið af: The Sun.com
Hvað segja menn um þetta, veit einhver hvað kauði heitir??
Æfingaleikir
Langar aðeins að taka púlsin á mönnum og hvernig þeim lýst á að taka einn æfingarleik á móti Huginn laugardaginn 21. febrúar á Egilstöðum nánar tiltekið á Fellavelli og síðan taka þá vonandi aftur æfingarleik helgina eftir það.
Höfum við góðar heimildir fyrir því að ekkert mál sé að fá völlinn og sé þetta aðeins spurning um metnað og áhuga hjá okkur um að mæta og reina spila fótbolta. Við höfum skrifað niður hóp af strákum sem ætti að vera reiðubúin í þetta verkefni og erum við hérna á laugum með nokkra einstaklinga sem eru tilbúnir að koma með.
Hópurinn:
Laugar : Ingi Þór Gunnarsson, Birkir Freyr Baldursson, Daði Petersson, Símon Svavarsson, Örn Björnsson, Ívar Örn Grétarsson, Þórhallur Ingi Jónsson, Smári Lárusson.
Akureyri : Guðmundur Friðbjarnarsson, Þorsteinn Ægir, Elías (markmaður), Ómar Eyjólfsson (markmaður), Bjarki Björnsson, Gunnlaugur Bjarnar Baldursson.
Vopnafjörður : Sigurður Donys Sigurðsson, Daníel Smári Magnússon, Elmar Þór Viðarsson, Helgi Már Jónsson, Arnar Geir, Arnar Ingólfsson, Sigurbjörn Reynir Björgvinsson, Marteinn Þór Vigfússon, Raggi, spurning með Kristófer Einarsson og Bjart Aðalbjörnsson.
Fjall myndarlegur hópur hér á ferð og vill ég að menn séu duglegir að skrifa comment og láta vita hvort þeir séu tilbúnir í verkefnið.
Endilega hafið samband við mig Símon Svavarsson ef þið viljið fá einhverjar upplýsingar um fyrirhugaða æfingar ferð
GSM númer er 8493416.
--Símon Svavarsson--
Frá Vopnafirði
Þetta er búið að fara frekar basic fram, menn eru að fara nokkuð í sitthvoru lagi í ræktina, en flestir gera það þó. Ég er ósáttastur með hvað við förum sjaldan út að hlaupa og tel að það ætti að gera fyrir hvern einasta bolta.
Við erum að fara í bolta hvern einasta virka dag og eru tímarnir, eins og þið flestir vitið, á bilinu 1-2 klst.
Þetta gengur fínt þegar að menn eins og Lommi og Donni eru ekki að rífast útaf því hvort að boltinn fór í innkast eða ekki ;) Það er frekar sveiflukennt hvað við erum margir en náum alltaf allavega 8 manns í bolta þannig að við erum nú sjaldnast í einhverju veseni.
Bjartur og Kristófer eru þeir yngstu sem eru með okkur í bolta og eru þeir frændur duglegir í ræktinni, sem er besta mál og tel ég þá vera að þróast mjög jákvætt í fína fótboltamenn.
Heilt yfir er ég bara nokkuð sáttur við gang mála hérna heima og það eina sem ég get séð að þessu er það að mér finnst að við ættum að hlaupa fyrir hvern bolta, það hitar mann ekkert betra upp að mínu mati. Maður bætir sig ekkert ef að maður leggur ekkert á sig.
-Daniel Nardiello
P.S. og ef að það veit einhver um far um helgina frá Vopnafirði til Akureyrar og er með laust sæti hjá sér þá þætti mér vænt um að vita það!
Niðurstaða Fundar
Hugsanlegt er að gera einhverskonar samning við Spyrni á Egilsstöðum um leikmenn og svo komu margir með hugmyndir um hugsanlega leikmenn sem vilja koma og spila með okkur. Þegar annar þeirra verður ráðinn þá fara leikmannamálin í gang að fullu.
Stjórnendur fundarinns voru með um það bil 20 stráka að heiman sem væru mögulegir leikmenn en það er talið nokkuð víst að sú tala minnki.
Steini og Elías frá Þórshöfn eru þeir leikmenn sem stjórnendur vilja fá að þessu sinni og ég helda að ég hafi heyrt rétt þegar talað var um það að fara að vinna í félagsskiptum þeirra.
já ég man ekki mikið meir, endilega setjiði komment ef ég er að gleyma einhverju:D
Allir leikmenn sem koma fá vinnu og húsnæði.
Þegar nær dregur sumri og menn komnir í betra form finnum við okkur einhver lið til að taka leiki á móti okkur
Fundur um 3 deild á morgun laugardaginn 24 janúar klukkan 11:00!!!!!!!!
Klukkan 11 í fyrramálið!!!!!!!!!!!!!Allir mæta
Upplýsingar um hvað fór fram á fundinum koma síðar inn á síðuna.
3. Deild í sumar eða hvað?
Við erum komnir með eitthverja stráka sem eru tilbúnir að koma heim í sumar og spila.
Svo er fundur á Laugardaginn kl 13:00 á Einherjiaskirifstofunni held ég. Allir að mæta og ræða þessi málefni af alvöru.
Þetta er listi af strákum sem eru líklegir að vera með í sumar.
Daði, Ívar, Simmi, Smári, Örn, Bjarki, Danni, Lommi, Gulli, Helgi Már, Gummi, Matti, Ómar, Bjössi, Arnar Geir
Og svo listi af strákum sem er alveg hugsanlega inni í dæminu.
Sölvi, Nenni, Arnar Ingólfs (Lögga), Steini (þórsh), Elías (Þórsh), Lárus (Laugar), Þórhallur (Laugar), Ingi (Laugar), Hjalti (Laugar).






